Nopef á Íslandi
Nopef veitir fjárhagslegan stuðning til hagkvæmnisathugana sem hjálpa norrænum fyrirtækjum að undirbúa vöxt á erlendum mörkuðum.
Fjárhagslegur stuðningur til alþjóðavæðingar
Nopef styður alþjóðavæðingu norrænna grænna lausna með því að veita litlum og meðalstórum fyrirtækjum fjárhagslegan stuðning til hagkvæmnisrannsókna til að kanna sóknarfæri á mörkuðum utan ESB og EFTA.
Stuðninginn má nýta til að meta og undirbúa alþjóðlegar fjárfestingar, svo sem að koma á fót erlendri starfsemi eða framkvæma tilrauna- eða kynningarverkefni (pilot eða demonstration projects).

Dæmi um íslenskan viðskiptavin:
Kaldara Group notar íslenska nýjung til að hjálpa kenískum sjómönnum
Með stuðningi frá Nopef prófaði Kaldara lausn sína í Kenýa, sá jákvæðar niðurstöður og hefur nú stofnað dótturfyrirtæki þar í landi með góðum árangri.

Hvaða fyrirtæki geta sótt um?
Til að geta fengið fjárhagslegan stuðning frá Nopef verða bæði umsækjandi og verkefnið sem um ræðir að uppfylla ákveðin skilyrði um hæfi og umhverfis- eða loftslagsáhrif.
Hvernig á að sækja um?
1
Skoðaðu umsóknarviðmiðin
Kynntu þér hæfisskilyrði fyrir fyrirtæki og verkefni.
2
Valfrjálst: Verkefnistillaga
Ef þú vilt fá álit okkar áður en þú sendir inn umsókn þá getur þú sent okkur verkefnistillögu. Þetta skref er valfrjálst.
3
Fylltu út umsókn
Sæktu og fylltu út umsóknareyðublað. Þú finnur allar upplýsingar um umsóknarferlið og nauðsynleg skjöl á vefsíðunni okkar.
4
Sendu inn umsókn
Sendu okkur umsóknina þína og nauðsynleg fylgigögn á info@nopef.com. Afgreiðslutími umsókna er 5-6 vikur eftir að umsóknarfresti lýkur.
Sendu okkur skilaboð
"*" indicates required fields
Hafðu samband við sérfræðingana okkar